lykkepose.bloggar.is
dagur í lífi stellu víðis
Ef þið viljið lesa ykkur til um dag í mínu lífi þá gjöriði svo vel
- Vaknaði klukkan 07:57 og hljóp fram og ældi því sem ég hef ekki étið síðustu daga.
- Svaf semsagt til hálfellefu og mætti þá galvösk í tíma
- Fór í mötuneytismat og át og át af pitsu þannig veikindi mín eru greinilega yfirstaðin
- Fór aftur í skólann og var gegt dugleg sofnaði EKKI EINU SINNI:)
- Eftir skóla fór ég að ná í skíðadótið mitt með Halldóru btw við Halldóra erum like this þessa dagana.
- Fór upp í fjall á GÖNGUSKÍÐI
- Er í útivist í íþróttum
- Rosalega hressandi, rosalega gott fyrir lungun en ég er í rosalega lélegu formi.
- Hugsaði mikið þegar ég var að ganga og horfði yfir akureyri rómó smómó
- Halldóra sótti mig upp í fjall og ég fór og keypti mér draum til að verðlauna mig.
- Ég fór heim og horfði á Melrose
- Svo kom Smerta og sagði mér að við værum með netið veiiii
- Þannig ég ligg hér í gönguskíðafötunum mínum á netinu víííí víííí......
- Er að fara að læra á eftir og kíkja kannski á kaffihús same old same old:)
- Svo er dagurinn ekki komin lengra gerist kannski eitthvað krassandi í kvöld
BLESS STELLA VÍÐISDÓTTIR